jæja nú fer alvaran að byrja...prófin eru að koma og ég ekkert farin að læra

eða alla vegna ekki mikið, það er ótrúlegt hvað tímin líður hratt, ég held alltaf að ég hafi allan tíman í heiminum og alltaf fresta ég því sem ég þarf að gra....en svo allt í einu er tímin bara farin frá mér og allt að fara að gerast og ég alltaf jafn hissa....talandi um að læra ekki af mistökunum

en svona er þetta bara það þýðir ekkert annað en að gefa aðeins í og fara að læra fyrir þessi próf....er reyndar ekki eins stressuð og fyrir áramót.
en nóg um það...
er að fara heim á eftir og get ekki beðið það er ótrúlegt hvað ég nenni ekki að hanga hérna í bænum, finst það alveg drepleiðinlegt...öll þessi umferð, læti, stress og reiðir vörubílstjórar...sem gerðu mér lífið frekar leiðinlegt á mánudaginn þegar ég var alveg stop í Ártúnsbrekku var að verða of sein í skólan og þurfti mikið að pissa

en ég vil samt taka fram að ég skil þá mjög vel og er mjög sammála að þessi bensínhækkun er alveg útí hött og nær engri átt.
en það er æðislegt hvað það er farið að vora, þó það sé ennþá pínu kalt úti en Þá er farið að birta mikið sem er byrjunin á vorinu...get ekki beðið eftir að komast í sumarfrí og vera í sveitinni með strákunum mínum og byrja að vinna...bara æðislegt

vona að við fáum svona gott sumar eins og í fyrra...sól og yl

en jæja ætla að fara að koma mér í vöðvarafritsblabla
bæó